Fréttir

Húnavallaleið ekki á aðalskipulagi Húnabyggðar

Húnavallaleið, sem myndi stytta hringveginn um 14 kílómetra, er ekki í nýju aðalskipulagi Húnabyggðar. RÚV.is segir í frétt að Svavar Pálsson sveitarstjóri viðurkenni að það geti torveldað framkvæmdir við veginn í framtíðinni. Margoft hefur komið fram að Húnvetningar eru ekki spenntir fyrir þessari styttiingu sem þýddi að þjóðvegur 1 færi ekki um Blönduós.
Meira

Vinnustaðaklasinn í frystihúsinu á Hofsósi hlaut styrk

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur úthlutað rúmum 27 milljónum kr. í styrki til 14 verkefna til að styðja við uppbyggingu vinnustaðaklasa á landsbyggðinni. Styrkirnir eru veittir á grundvelli byggðaáætlunar. Markmiðið er að fjölga atvinnutækifærum og auka fjölbreytileika starfa á landsbyggðinni. Eitt verkefni á Norðurlandi vestra hlaut styrk en vinnustaðaklasinn í gamla frystihúsinu á Hofsósi fékk úthlutað fjórum milljónum í flokknum Ný uppbygging á miðlungssvæði.
Meira

Silfrastaðakirkja er komin heim

Í gær 4. nóv. lauk 5 ára dvöl Silfrastaðakirkju á Sauðárkróki en þar hefur hún verið til endurbyggingar hjá Trésmiðjunni Ýr. Þar var hún undir verndarvæng Bjössa Svavars, Einars Guðmunds og fleirri góðra manna. En sem sagt þá var loks allt klárt til þessa að flytja kirkjuna heim. Mættur var Árni Helgason frá Ólafsfirði og kranamaður hans, Sigurður Ólafsson. Árni hafði séð um að hífa kirkjuna fyrir 5 árum og taldi rétt að klára verkið. Einar á Kúskerpi var svo mættur með treilerinn sinn til aka gripnum heim eins og hann hafðu gert hérna um árið. Guðmundur Sigurðsson frá Minjastofnun hafði eftirlit með flutningum.
Meira

180 börn á hrekkjavökuballi á Blönduósi

Það var heldur betur líf og fjör í Félagsheimilinu á Blönduósi í gærkvöldi þegar 180 börn á aldrinum 10–12 ára af öllu Norðurlandi vestra komu saman á hrekkjavökuballi. Félagsheimilið var skreytt í anda hrekkjavökunnar og mátti sjá alls konar skemmtilegar og skrautlegar fígúrur á svæðinu.
Meira

Tröll geta verið krútt

Ímyndanaraflið fékk að malla af miklum móð á Héraðsbókasafni Skagfirðinga á Sauðárkróki nú á mánudaginn. Þá mætti brúðulistakonan Greta Clough frá Hvammstanga til leiks og leiðbeindi áhugasömum ungum listamönnum í tröllagerð. Tröllabrúðusmiðja fyrir börn var hluti af dagskrá barnamenningarhátíðarinnar Skúnaskralls sem lauk reyndar í gærkvöldi með skralli á Blönduósi.
Meira

Einar Kára og Sigurður Hansen kynna nýja bók í Kakalaskála

Feyki barst óvænt á síðustu stundu auglýsing í síðasta tölublað þar sem tilkynnt var um fögnuð í Kakalaskála í Blönduhlíð í tilefni af útkomu bókar Einars Kárasonar um húsráðanda, Sigurð Hansen. Það verða örugglega margir sem hlakka til þess að orna sér með þá sögumenn í kjöltunni, enda segir í auglýsingunni: Bráðskemmtileg bók í skagfirskum gleðianda! Feykir spurði Einar út í bókina, Sigga og útgáfufögnuðinn sem verður í Kakalaskála kl. 17 á laugardaginn.
Meira

Ríkissjóður Íslands kaupir Brúnastaði á Hólum

Ríkissjóður Íslands hefur gengið frá kaupum á hesthúsinu og reiðhöllinni Brúnastöðum á Hólum í Hjaltadal. Kaupin marka stóran og ánægjulegan áfanga fyrir hestafræðideild Háskóla Íslands á Hólum, nemendur hennar og framtíð hestafræðináms á Hólum.
Meira

Marsvín á Borgarsandi

Fyrsta dag nóvembermánaðar varð vart við hvalreka á Borgarsandi við Sauðárkrók. Í frétt á splunkunýjum vef Náttúrustofu Norðurlands vestra segir að um hafi verið að ræða marsvín eða grindhval (Globicephala melas).
Meira

Sex réttir með sérvöldum vínum á Sauðá

Vínfræðingurinn Sóley Björk Guðmundsdóttir og veitingahúsið Sauðá ætla að slá upp vín- og matarveislu laugardaginn 14. nóvember nk. Þar ætla þau að para saman sælkerarétti úr úrvalseldhúsinu á Sauðá og sérvalin handverksvín frá Katalóníu á Spáni.
Meira

Magnús sveitarstjóri með fasta viðtalstíma

Magnús Barðdal sveitarstjóri verður með fasta viðtalstíma í Skagafirði annan hvern föstudag, ýmist í Varmahlíð, á Hofsósi og Sauðárkróki frá og með 6. nóvember. Í frétt á vef Skagafjarðar segir að þeir sem áhuga hafi séu hvattir til að nýta sér þennan möguleika og eiga gott spjall við Magnús um þjónustu og málefni sveitarfélagsins og koma á framfæri ábendingum eða ræða einstök mál.
Meira